sunnudagur, júní 19, 2005

Jamm og já

Ég er að mála baðherbergið mitt hvítt en það var svona skemmtilega svart áður. Það er öllu vinalegra núna. Er jafn framt búinn að fúgaverja glugga og útihurðir mínar. Já, svona er það. Er svo að fara til Spánar á miðvikudaginn að heimsækja pabba Heiðars. Verð þar í tæpar 2 vikur. Fer svo til Danmerkur í ágúst til að nema verkfræði við DTU í 1 ár. Mig vantar hins vegar íbúð í Danmörku, svo ef einhver veit af lausri íbúð þar má sá hinn sami láta mig vita.
Er svo búinn að komast að því að ég er frægur þar sem það er mynd af mér framan á gay pride kortinu. Vissi ekki einu sinni af því.

föstudagur, júní 03, 2005

Iron Maiden

Ég á einn aukamiða á tónleika Iron Maiden þriðjudaginn 7. júní. Miðinn er á A-svæði. Ef einhverjir eru áhugasamir geta þeir kommentað á bloggið eða sent e-mail á drh@hi.is.