miðvikudagur, ágúst 30, 2006

Komum bæði frá Kópavogi

Já, það er gott að búa í Kópavogi. Ég hef fengið að kynnast því í sumar þar sem ég bý tímabundið hjá Jóni Óskari Kópavogsbúa. Íbúðin mín í miðbæ Reykjavíkur er nefnilega leigð út til loka þessa mánaðar.

Ég fór á Sandgerði um helgina með Ödda í veikri von um að sjá minnisvarða um Leoncie. Eigi varð ég að ósk minni og virtust bæjarbúar ekki einu sinni kannast við kauðu. Okkur tókst hins vegar að finna Voga á Vatnsleysuströnd en lengi vel töldum við að hugmyndin um þennan þéttbýliskjarna væri einungis uppspuni frá rótum. Við þurftum að keyra Vatnsleysutrönd um langa stund áður en Vogar komu okkur fyrir sjónir. Þar var að sjálfsögðu áð í Aðalsjoppunni og trópí og pepsí drukkið.