laugardagur, júní 09, 2007

Kastljós

Djöfull var hann ósmekklegur kastljósþátturinn á fimmtudag. Dauð ljón til sýnis og morðingja þeirra hampað. Held það væri nær að stinga honum í fangelsi. Maðurinn á ekkert með að ryðjast inn í heimkynni kattanna, blóðþyrstur, til þess eins að myrða þá. Þetta var ógeðslegur þáttur.

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Ég sá ekki þennan þátt, sennilega sem betur fer því þetta hefur örugglega verið ógeðslegt.
Ég man eftir að hafa séð mynd af morðingja og fórnarlambi hans í dagblaði, fréttablaðinu ef ég man rétt. Þarna sat hann, morðinginn, montinn og ógeðslegur hjá saklausu fórnarlambi sínu sem hafði ekkert gert honum og hann drap það af því að hann átti afmæli eða eitthvað. Þetta var s.s. maður og ljón eins og í þættinum. Sumir menn eru bara einfaldlega fífl.

9:44 e.h., júní 13, 2007  
Anonymous Nafnlaus said...

Já, þessi ljónakall var frekar óhuggulegur, það er ótrúlegt að svona fólki sé hampað.

11:39 e.h., júní 14, 2007  

Skrifa ummæli

<< Home