sunnudagur, júní 19, 2005

Jamm og já

Ég er að mála baðherbergið mitt hvítt en það var svona skemmtilega svart áður. Það er öllu vinalegra núna. Er jafn framt búinn að fúgaverja glugga og útihurðir mínar. Já, svona er það. Er svo að fara til Spánar á miðvikudaginn að heimsækja pabba Heiðars. Verð þar í tæpar 2 vikur. Fer svo til Danmerkur í ágúst til að nema verkfræði við DTU í 1 ár. Mig vantar hins vegar íbúð í Danmörku, svo ef einhver veit af lausri íbúð þar má sá hinn sami láta mig vita.
Er svo búinn að komast að því að ég er frægur þar sem það er mynd af mér framan á gay pride kortinu. Vissi ekki einu sinni af því.

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Sælir.
Ég taldi að baðherbergið yrði ætíð svart en sjálfsagt er það rétt hjá þér að hvítt er vinalegra en svart. En hvaða dugnaður er annars í gangi? Ekki svo að skilja að ég telji þig latan mann! Góða ferð út og skemmtu þér vel bróðir sæll.

11:20 e.h., júní 20, 2005  

Skrifa ummæli

<< Home